Aurskriður geta fallið allt árið, þó eru þær algengastar á haustin og vorin. Oft eru fjallshlíðar óstöðugar og þarf einungis smá rigningu eða hitabreytingu til að koma skriðum af stað. Helstu aurskriðusvæðin eru á Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum, en einnig víða á Suðurlandi. Með hlýnandi veðurfari má búast við aukningu aurskriða.
Náttúrufræðistofnun Íslands aflar gagna um skriðuföll og hættu af þeirra völdum í samvinnu við Veðursofu Íslands.