Upp úr kl.23:00 í kvöld var flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll virkjuð vegna bilunar í flugvél á leið austur yfir Atlantshaf. Um var að ræða Being 777 með 6 manns um borð.
Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð var virkjuð auk aðgerðarstjórnar í Keflavík.
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum mættu í viðbraðsstöðu við flugvöllinn og viðbragðsaðilar á höfuðborgarsvæðinu voru einnig í viðbragðsstöðu.
Vélin lenti án vandræða upp úr kl.23:30. Þegar búið var að ganga úr skugga um að allt væri í lagi var virkjun áætlunarinnar afturkölluð.