Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi:
- Áfram hættustig á Seyðisfirði og rýmingar að hluta í gildi vegna skriðuhættu.
- Rýmingar verða endurskoðaðar 28. desember.
- Fylgst er vel með aðstæðum ofan Eskifjarðar
Eskifjörður:
Veðurstofa Íslands hefur ásamt samstarfsaðilum sett upp vefmyndavél sem beint er að sprungum sem mynduðust í gamla Oddsskarðsveginum í síðustu viku. Auk þess eru fastpunktar mældir einu sinni á dag til þess að athuga hvort vart verði við hreyfingar í hlíðinni. Það er gert til þess að geta brugðist við ef aðstæður breytast á næstu dögum. Síðustu mælingar benda þó til þess að allt sé með kyrrum kjörum.
Seyðisfjörður:
Síðasta sólahring var fylgst sérstaklega vel með aðstæðum á Seyðisfirði vegna hlýinda sem gengu yfir. Engar tilkynningar bárust um skriður eða drunur. Þá sýndu mælingar í morgun að lítil sem engin hreyfing hafi orðið á upptakasvæðum skriðufalla frá því í gær. Á morgun verður kalt, en búast má við hríðarveðri sem færist yfir í rigningu með 15-20 m/s á á sunnudag, 27. desember. Um kvöldið kólnar aftur með snjókomu. Að þessum sökum mun endurkoðun á rýmingarsvæðinu ekki fara fram fyrr en á mánudaginn 28. desember og niðurstöðu má vænta seinni part mánudags. Á meðan veðrið gengur yfir má búast við erfiðri færð á Fjarðarheiði og fóllk því beðið að fylgjast vel með færð á vegum og viðvörunum á www.vedur.is og www.vegag.is.
Staðan er metin daglega og yfirfarin á samráðsfundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, lögreglunni á Austurlandi, Veðurstofu Íslands, sveitarfélögum og öðrum viðeigandi aðilum. Tilkynninga frá þeim fundum má vænta seinni part hvers dags. Þær verða sendar fjölmiðlum, og birtar á vefsíðum og á samfélagsmiðlum lögreglunnar á Austurlandi og almannavarnadeildar RLS. (www.logreglan.is og www.almannavarnir.is). Ef aðstæður breytast hratt munu tilkynningar þess efnis verða sendar út.
Þjónustumiðstöð almannavarna opnar næst í Herðubreið 27. desember kl 11, en yfir jólin er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sey@logreglan.is og ef erindið er brýnt má hringja í 839 9931.