Vegna skipulags skólastarfs

Unnið er að skipulagi áframhaldandi skólagöngu barna úr Grindavík sem og leikskólagöngu. Talsvert skortir upp á að Grindvíkingar hafi tilkynnt verustað sinn í síma 1717, sem er forsenda þess að hægt sé að skipuleggja órofna skólagöngu.

Við hvetjum Grindvíkinga, sem hafa ekki gert það enn, að hringja sem allra fyrst í síma 1717 og láta vita hvar þeir hafa komið sér fyrir. Þetta hefur úrslitaþýðingu hvað varðar að skipuleggja skólahald. Allir Grindvíkingar með börn á skóla aldri, bæði leik og grunnskóla eru því hvattir til að tilkynna aðsetur sitt í 1717.