Þann 10. desember síðastliðinn lýsti Veðurstofa Íslands (snjóflóðavaktin) yfir óvissustigi vegna hugsanlegar snjóflóðahættu á Mið-Norðurlandi. Var þessi ákvörðun tekin í kjölfar mjög slæmrar veðurspár og mikla snjókomu. Átti þetta við fjallendi í Skagafirði, Tröllaskaga og austur fyrir Eyjafjörð. Veðurstofan fylgist að venju með frekari snjósöfnun í fjöllum.