Mánudaginn 26. febrúar, kl. 17:00 til 19:00, heldur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra upplýsingafund fyrir íbúa Grindavíkur. Fundurinn verður haldinn í Laugardalshöllinni og verður streymt. Markmiðið er að upplýsa íbúa um stöðu jarðhræringa og innviða í og við Grindavík. Fram hefur komið að staðan sé ekki góð og því er mikilvægt fyrir íbúa að fá réttar upplýsingar í máli og myndum.
Dagskrá fundarins sem verður streymt.
- Háskóli Íslands / Freysteinn Sigmundsson
- Veðurstofa Íslands / Kristín Jónsdóttir
- Varnargarðar / Vinnan í dag og næstu skref – Ari Guðmundsson
- Jarðkönnun / Staðan og framhaldið / Hallgrímur Örn Arngrímsson
- Neysluvatn, frárennsli og almennt um stöðuna á innviðum Grindavíkurbæjar / Atli Geir Júlíusson
- Rafmagn og heita vatnið / Reynir Sævarsson
- Lögreglustjórinn á Suðurnesjum / Úlfar Lúðvíksson
Auk þessara aðila verða fulltrúar eftirtaldra á staðnum:
- Vegagerðin
- HS Veitur
- HS Orka
- Náttúruhamfaratrygging Íslands