Upplýsingafundur Almannavarna kl. 13 á laugardag 18. nóvember

Klukkan 13:00 á morgun, laugardaginn 18. nóvember verður haldinn upplýsingafundur Almannavarna, í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð.

Fundinum stýrir Víðir Reynisson, sviðsstjóri Almannavarna. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra fer á fundinum yfir stöðu mála eftir atburði síðustu viku í Grindavík.

Einnig verða á fundinum Fannar Jónasson, bæjarstjórinn í Grindavík og Kristín Jónsdóttir frá Veðurstofu Íslands.

Gert er ráð fyrir að fjölmiðlafólk geti spurt spurninga á fundinum sjálfum og tekið viðtöl eftir fund. Fundinum verður streymt.