Samhæfingarstöðin var virkjuð í morgun um klukkan 6:00 og viðbragðsaðilar kallaðir út, er boð komu frá Neyðarlínunni um virkjun flugslysaáætlunar Keflavíkurflugvallar. Flugstjóri flugvélar Air Iceland Connect, sem var að koma frá Akureyri tilkynnti um bilun í hjólabúnaði. Þrjátíu og sjö manns voru um borð í vélinni. Vélin lenti heilu og höldnu og um klukkan 6:40 var virkjun flugslysaáætlunarinnar afturkölluð.