Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórann á Vestfjörðum lýsir yfir óvissustigi vegna skriðu- og grjóthrunshætta á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum.
Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni, sérstaklega undir bröttum hlíðum og farvegum þar sem vatn rennur niður hlíðarnar og jarðvegur er orðinn mjög blautur. Hafa nokkrar skriður fallið á vegi á Vestfjörðum sl. sólarhring.
Frekari upplýsingar á vef Veðurstofunnar www.vedur.is