Óvissustig Almannavarna vegna mikillar rigningar og skriðuhættu

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra hafa ákveðið að fara á óvissustig Almannavarna vegna mikillar rigningar á Tröllaskaga og aukinnar skriðuhættu.  Vegagerðin hefur lokað Siglufjarðarvegi frá Hrauni að Strákagöngum vegna grjóthruns. Hjáleið um Lágheiði.  Viðbragðsaðilar hafa frá því snemma í morgun verið í ýmsum verkefnum þessu tengt.  Áframhaldandi rigningaspá er á svæðinu til morguns.

Þessi ákvörðun var tekin í framhaldi af fundi Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra með aðgerðastjórn á Norðurlandi eystra og Veðurstofu rétt í þessu.  Almannavarnadeild fylgist áfram með stöðunni og verður í sambandi aðgerðarstjórn.