Ríkislögreglustjóri í samráði við Lögreglustjórana á Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi lýsir yfir óvissustigi Almannavarna vegna aukinnar skjálftavirkni í Bárðarbungu.
Það að lýsa yfir óvissustigi þýðir að eftirlit er haft með atburðarrás sem gæti á síðari stigum leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað.
Snemma í morgun var snörp jarðskjálftahrina í Bárðarbungu. Veðurstofa Íslands fylgist vel með framvindunni. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi Almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.