Líkur hafa aukist á eldgosi. Getur hafist hvenær sem er á næstu dögum. Likelihood of an eruption has risen.

Veðurstofan hefur birt nýtt mat á stöðu mála á Reykjanesi:

English below.

Líkön sýna 15 km langan kvikugang sem liggur rétt norðvestan Grindavíkur. Vegna mikillar spennulosunar á svæðinu er ekki hægt að gera ráð fyrir að gosórói mælist áður en eldgos hefst.

Klukkan 18 lauk stöðufundi vísindamanna á Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands og Almannavarna þar sem farið var yfir túlkun á nýjustu gögnum sem borist hafa frá því á hádegi í dag. Unnin voru líkön út frá gervitunglamyndum og GPS mælingum. Líkön sýna að umfang kvikugangsins er verulegt og kvika er að nálgast yfirborð. Gangurinn nær frá Kálffellsheiði í norðri og liggur rétt vestan Grindavíkur og í sjó fram í suðvestur stefnu. Kvikugangurinn er um 15 km langur og kvikan liggur á um 800 m dýpi þar sem hún er grynnst. Það skal tekið fram að líkönin byggja á gervitunglagögnum sem eru um 12 klukkustunda gömul og því þarf að gera ráð fyrir að kvikan hafi færst nær yfirborði en 800 m. Út frá þessu má álykta að verulegar líkur eru á að kvika nái að brjóta sér leið til yfirborðs. Auknar líkur eru einnig á að kvika geti komið upp á hafsbotni.

Dregið hefur mikið úr jarðskjálftavirkni eftir hádegi í dag. Talið er að megin ástæða þess sé mikil spennulosun á svæðinu vegna jarðskjálfta gærdagsins og aflögunar vegna kvikugangsins. Vegna spennulosunarinnar er líklegt að kvikan eigi greiða leið til yfirborðs og því er ekki hægt að gera ráð fyrir því að gosórói sjáist á mælum áður en eldgos hefst.

Byggt á túlkun nýjustu gagna hefur Veðurstofan sent tilmæli til almannavarna að líkur á eldgosi hafi aukist frá því í morgun og að eldgos geti hafist hvenær sem er á næstu dögum. Líkön benda einnig til þess að kvika geti komið upp á syðri enda kvikugangsins rétt utan Grindavíkur. Líkur á eldgosi á hafsbotni hafa einnig aukist og búa þarf sig undir þá sviðsmynd. Hættusvæði hefur verið skilgreint út frá legu kvikugangsins.

English:

Models now show a 15 km long magma corridor that lies just north west of Grindavik. Because the seismic activity is so great in the are, we can not expect to see the small earthquakes that signal a start of an eruption.

A meeting of scientists at Icelandic Meteorology ended at 18:00 and there the newest data was scrutinized and evaluated. Models were built based on this data and they show that the size of the magma corridor is significant and magma is now closer to the surface. The crack is 15 km long and the depth of the magma is about 800 meters. The magma corridor lies from Kálffells moor in the north, lies just west of Grindavik into the ocean in a south west heading. It must be noted that the data the models are based on is 12 hours old, and therefore it must be considered that the magma has risen closer to the surface than 800 meters. Conclusions from this are that the likelihood of magma finding it’s way to the surface is significant. The likelihood that magma will find it´s way to the surface on the ocean floor has risen as well.

A danger zone has been designated based on the position of the magma corridor.