
Með Ólöfu Nordal innanríkisráðherra á myndinni eru Ragnhildur Hjaltadóttir, Björn Oddsson, Jón F.Bjartmarz, Sigurður Pálsson og Haraldur Johannessen.
Innanríkisráðherra Ólöf Nordal heimsótti Samhæfingarstöðina í Skógarhlíð í dag og kynnti sér málefni almannavarna og atburðarásina í Bárðarbungu og Holuhrauni. Ríkislögreglustjóri Haraldur Johannessen og Jón F.Bjartmarz yfirlögregluþjónn tóku á móti ráðherra og Björn Oddsson verkefnastjóri hjá almannavarnadeildinni var með kynningu um jarðhræringarnar í Bárðarbungu.