Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Höfuðborgarsvæðinu, Vesturlandi, Suðurnesjum og Vestmannaeyjum aflýsir hættustigi Almannavarna vegna veðurs sem gekk yfir á þessum landssvæðum síðasta sólarhringinn. Hættustig Almannavarna er enn virkt á Norðurlandi eystri, Norðurlandi vestra, Austurlandi og Suðurlandi.
Fólk er áfram hvatt til að fylgjast með á vef Veðurstofunnar http://www.vedur.is. Auk þess er hægt að fylgjast með færð á vegum á www.umferdin.is