Vísindaráð almannavarna hittist á fjarfundi miðvikudaginn 10. júní vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og nýlegra mælinga í Grímsvötnum. Fundinn sátu vísindamenn frá Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnun Háskólans, HS-Orku,ÍSOR og Umhverfisstofnun ásamt fulltrúum frá Isavia-ANS, almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og lögreglunni á Suðurnesjum.
Reykjanessskagi
Um miðjan maí hófst þensla að nýju vestan við Þorbjörn sem bendir til þess að nú sé í gangi þriðja kvikuinnskotið á þessu svæði frá áramótum. Innskotið virðist hafa byrjað að myndast um miðjan maí en jarðskjálftavirkni jókst nokkru síðar eða þann 30. maí. Um 700 skjálftar hafa mælst síðan þá og er mesta skjálftavirknin austan við Þorbjörn, einungis fáeinum kílómetrum norðan Grindavíkur. Stærstu skjálftarnir í þessari hrinu eru tæplega 3 að stærð.
Í heildina hefur nú land risið um 12 cm frá því landris hóst í janúar á þessu ári. Á milli ristímabila verður vart við örlítið sig sem líklega skýrist af kólnun og samdrætti kviku í innskotunum eða víxlverkun við jarðhitakerfið. Líkanreikningar benda til að þetta þriðja innskot við Þorbjörn sé áþekkt fyrri innskotum þar, þ.e. miðja þeirra er um 1 km vestan Þorbjarnar, dýpi um 3-4 km og lögun þessara innskota eru ílangar nokkur hundruð metra breiðar sillur sem teygja sig norðaustur og suðvestur og eru allt að 6 km langar. Rúmmál sem safnast hefur fyrir í þriðja risfasa nemur um 1.2 milljónum rúmmetra. Jarðskjálftavirknin er dreifð um stærra svæði en sem nemur áætlaðri staðsetningu kvikuinnskotanna, sennilega vegna spennubreytinga í jarðskorpunni sem innskotin valda á stóru svæði umhverfis sig.
ÍSOR gerði þyngdarmælingar í fastapunktum í lok janúar skömmu eftir að land tók að rísa við Þorbjörn og aftur í lok apríl. Niðustöður renna stoðum undir þá túlkun að kvikuinnskot hafi átt sér stað. Ástæða er til að endurtaka þyngdarmælingarnar nálægt miðju sumri.
Vikulegar gasmælingar á tveimur stöðum í grennd við landrisið eru breytilegar en tengsl við innskotavirkni eru óljós. Jarðhitavinnslan í Svartsengi hefur ekki merkt neinar efnabreytingar í jarðhitakerfinu. Mælingar í jarðhitakerfinu sýna aukna lekt og aukið vökvaflæði í berginu innan kerfisins, sem telja má að sé afleiðing skjálftavirkni, þenslu og landriss á svæðinu, þar sem nýjar sprungur hafi myndast og eldri sprungur opnast. Úrvinnsla Veðurstofu Íslands á skjálftamæligögnum í Grindavík benda einnig til þess jarðskorpan á svæðinu hafi tekið varanlegum breytingum á árinu.
Veðurstofa Ísland ásamt Jarðvísindastofnun, ÍSOR og HS-Orku mun áfram fylgjast vel með þróun mála á Reykjanesskaga.
Grímsvötn
Á fundinum var einnig rætt um stöðuna í Grímsvötnum, en Jarðvísindastofnun og Veðurstofa Íslands voru þar við mælingar í byrjun júní.
Á virknitímabilum eins og verið hefur frá 1996, er algengt að 5-10 ár séu milli gosa í Grímsvötnum. Síðast gaus þar 2011 og var það nokkuð stórt og kröftugt gos. Á þeim tíma sem liðinn er frá gosinu benda aflögunarmælingar til þess að kvika hafi safnast fyrir og þrýstingur í kvikuhólfi aukist. Jarðhiti á yfirborði fer einnig vaxandi og í síðustu viku mældu starfsmenn Veðurstofunnar SO2 í suðvesturhorni Grímsvatna, nærri þeim stað þar sem gaus 2004 og 2011. Þetta er í fyrsta sinn sem SO2 mælist í svo miklu magni í eldstöð á Íslandi án þess að eldgos sé í gangi og er vísbending um grunnstæða kviku.
Árið 1953 setti Sigurður Þórarinsson fram kenningu um samband jökulhlaupa og eldgosa í Grímsvötnum. Ef færi saman hár kvikuþrýstingur í Grímsvötnum og jökulhlaup eftir mikla vatnssöfnun í Grímsvatnaöskjunni, þá gæti lækkun vatnsborðsins og þar með þrýstiléttir ofan við kvikuhólfið orðið til þess að kvikan bryti sér leið upp á yfirborð og eldgos hæfist. Atburðarás af þessu tagi hefur margoft orðið í Grímsvötnum, síðast árið 2004 og þar áður 1934 og 1922.
Núna eru aðstæður í Grímsvötnum þannig að vatnsborð stendur fremur hátt auk þess sem kvikuþrýstingur er hár í kvikuhólfinu undir öskjunni. Því verður að gera ráð fyrir þeim möguleika að eldgos brjótist út í lok jökulhlaups, sem gæti orðið á næstu vikum eða mánuðum. Alls ekki er víst svona fari, jökulhlaup á næstunni þarf ekki að leiða til eldgoss.
Vegna aðstæðna í
Grímsvötnum nú, var ákveðið að fara betur yfir stöðu mála í næstu viku.