Vísindaráð almannavarna hittist á fundi í dag til þess að ræða mælingar og vöktun vegna Öræfajökuls.
Kynntar voru niðurstöður úr mælingum á vatnssýnum sem tekin voru um helgina úr ám sem renna frá Öræfajökli. Þær voru bornar saman við mælingar sem framkvæmdar voru 1988. Í ljós kom að það vatn sem kemur fram í Kvíá er blanda bræðslu- og jarðhitavatns. Ekki sjást greinileg merki um kvikugös í vatninu. Af því má draga þá ályktun að stækkun á sigkatlinum í Öræfajökli stafi af aukinni jarðhitavirkni.
Aukin jarðhitavirkni getur stafað af meiri lekt og sprungumyndun í jarðhitakerfinu samfara jarðskjálftum og/eða auknum hita í jarðhitakerfinu tengt grunnstæðu kvikuinnskoti.
Vegna illviðris næstu daga hafa áætlanir um uppsetningar á síritandi mælitækjum riðlast, en þau verkefni verða kláruð um leið og tækifæri gefst. Fram að því verða gerðar reglulegar handvirkar mælingar á ám sem renna frá Öræfajökli. Mikilvægt er að fylgjast áfram vel þróun mála í eldstöðinni.