Eftirfarandi fréttatilkynning var send frá Samhæfingarstöð almannavarna til fjölmiðla rétt í þessu.
- Fólk á Flateyri er beðið um að halda kyrru fyrir heima að svo stöddu.
- Íbúar á Suðureyri eru beðnir um að halda sig frá höfninni.
- Rýma þarf Höfða í Skutulsfirði.
Eitt snjóflóðið fór ekki langt frá a.m.k. einu húsi en ekki er talið að neinn sé alvarlega slasaður. Ekki er vitað til þess að fleiri hafi orðið fyrir snjóflóðunum á þessari stundu.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið til Flateyrar.
Aðgerðarstjórn er að störfum á Ísafirði.
Varðskipið Þór sem var statt á Ísafirði er einnig á leið til Flateyrar.