Frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum: aðgengi að Grindavík og Svartsengi

Frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum:

Eldgosið sem hófst miðvikudaginn 29. maí sl. lauk þann 22. júní sl.   Gosið stóð yfir í 24 daga og var fimmta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni síðan í desember 2023.  Jafnframt er hraunbreiðan sem myndaðist í síðasta gosi sú stærsta að rúmmáli og flatarmáli.  

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum ákvað þann 24. júlí sl. að færa almannavarnastig af óvissustigi yfir á hættustig vegna kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Meðfylgjandi er uppfært hættumatskort Veðurstofu Íslands frá því í gær vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga sem gildir til 6. ágúst 2024 kl. 15:00, að öllu óbreyttu.   Hættumatið er óbreytt frá síðustu viku.  Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir undir Svartsengi eru auknar líkur á eldgosi.  Aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.   Jarðskjálftum fer hægt fjölgandi á Sundhnúksgígaröðinni.  Samkvæmt líkanareikningum er talinn vera nægur þrýstingur til að koma af stað nýjum atburði á næstu dögum.  GPS mælingar sýna að síðustu daga hefur hægt örlítið á landrisi.  Samhliða jarðskjálftavirkni geta þær upplýsingar bent til þess að það styttist í næsta kvikuhlaup og jafnvel eldgos.

Tilefni er til þess að hafa áhyggjur af því að hraun geti náð inn fyrir varnargarða við Grindavík.  Þannig er möguleiki á að hraun sem kæmi upp úr gosopi norðan varnargarða ofan bæjarins geti leitað ofan í sprungukerfi sunnan Hagafells og leitt hraunstraum inn fyrir bæjarmörkin.   Þá er ekki hægt að útiloka að gossprunga geti opnast inn í Grindavík.   Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Veðurstofunnar.

Starfsemi er í Bláa lóninu og hjá Northern Light Inn að höfðu samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.  Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.  Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Fulltrúar fyrirtækjanna sitja fundi aðgerðarstjórnar og vettvangsstjórnar.    Fylgjast þarf með opnunartímum á heimasíðum fyrirtækjanna.  Þar getur þurft að rýma með skömmum fyrirvara en fyrirtækin starfa inn á skilgreindu hættusvæði Veðurstofu Íslands.  Hætta á svæðinu er nú talin töluverð og mikil hætta á hraunflæði og gasmengun.

Umferð til og frá Bláa Lóninu og Northern Light Inn er um Grindavíkurveg en tekist hefur að koma á vegtengingu þaðan inn á bílastæði fyrirtækjanna.

Viðbragðsaðilar, hópur vísindamanna og einstaklingar á vegum Blaðamannafélags Íslands, með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum, er heimilt að fara inn fyrir lokunarpósta við Nesveg, Bláalónsveg og Suðurstrandarveg.  Vakin er athygli á því að inn á merkt vinnusvæði fara menn ekki nema með samþykki þeirra sem stjórna þar aðgerðum.  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Frekari upplýsingar:

  • Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. 
  • Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænumSvæði með óásættanlegri áhættu er sýnt á meðfylgjandi korti.  Svæði austan Víkurbrautar og norðan Austurvegar.  Þar dvelji enginn að næturlagi.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara.   Í Grindavík er talin mjög mikil hætta á jarðfalli ofan í sprungur, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gasmengun.  Gosopnun innan Grindavíkur er ekki útilokuð.
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Gosstöðvarnar og hraunið sem runnið hefur er ekki aðgengilegt fyrir ferðamenn en aðstaða til að leggja ökutækjum eru ekki fyrir hendi á og við Grindavíkurveg við núverandi aðstæður.

Framkvæmdanefnd fer með stjórn, skipulag og framkvæmd verkefna sem hér segir:

  1. Starfrækslu þjónustuteyma sem samþætta þjónustu fyrir íbúa Grindavíkurbæjar, m.a. þegar kemur að skóla- og frístundastarfi, félagsþjónustu, barnaverndarþjónustu, þjónustu við eldra fólk, fatlað fólk og aðra viðkvæma hópa og stuðningi á sviði húsnæðis- og vinnumarkaðsmála. Verkefni þjónustuteyma eru m.a. að vinna tillögur og áætlanir um stuðning við íbúana og eiga samráð við móttökusveitarfélög, stjórnvöld og aðra aðila um þjónustu við þá.
  2. Töku ákvarðana um rekstur þjónustumiðstöðvar fyrir íbúa Grindavíkurbæjar og starfrækslu hennar eftir atvikum.
  3. Gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavíkurbæ í samvinnu við ríkislögreglustjóra.
  4. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða til að tryggja virkni, rekstur og afhendingaröryggi innviða, eftir því sem við á og fellur undir ábyrgðarsvið Grindavíkurbæjar.
  5. Könnun á jarðvegi.
  6. Yfirumsjón með framkvæmd nauðsynlegra viðgerða á götum, stígum og opnum svæðum sem Grindavíkurbær er ábyrgur fyrir.
  7. Yfirumsjón með vernd lausafjármuna í Grindavíkurbæ eftir því sem við á, að mati framkvæmdanefndarinnar.
  8. Framkvæmd aðgangsstýringar í Grindavíkurbæ í samvinnu við lögreglu.
  9. Upplýsingamiðlun til íbúa Grindavíkurbæjar og hagaðila um stöðu mála og framgang verkefna sem nefndin sinnir.

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. 

Lokunarpóstar eru við Grindavíkurveg, Bláalónsveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Suðurstrandarveg, Nesveg, Bláalónsveg og eftir atvikum um Grindavíkurveg.  Flóttaleiðir frá Bláa Lóninu eru um Bláalónsveg og  Grindavíkurveg.  Arfadalsvíkurvegur er lokaður einbreiður malarvegur sem getur nýst ef til rýmingar kemur.

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangt en dvalið var í 34 húsum síðastliðna nótt.    Lögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.  Íbúar og þeir sem eiga erindi til Grindavíkur og vilja aka Grindavíkurveg þurfa að aka inn á Bláalónsveg að Nesvegi til Grindavíkur.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.    

Framangreint fyrirkomulag gildir til  6. ágúst 2024 að öllu óbreyttu.