Frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum / 10. maí 2024.

Fréttatilkynning til fjölmiðla.

Eldgos hófst á milli Hagafells og Stóra Skógfells laugardagskvöldið 16. mars sl. eftir skammvinna skjálftavirkni.  Gosið hefur nú sjö sinnum frá 19. mars 2021 og var þetta eldgos það fjórða í röðinni á jafnmörgum mánuðum.  Fyrirvari viðbragðsaðila nú var enginn en vel tókst til með að rýma bæði Grindavík og eins Bláa lónið þar sem fjöldi gesta var samankominn.  

Engin virkni er nú í gígnum og er þessu eldgosi lokið að mati Veðurstofu Íslands.  Áfram eru taldar auknar líkur á nýju kvikuhlaupi og nýju eldgosi.  Áfram mælist landris í Svartsengi.    Fyrirvari á nýju eldgosi gæti orðið stuttur.

Hættumat Veðurstofu Íslands var uppfært 7. maí sl. og gildir til 14. maí nk. að öllu óbreyttu.  

Bláa Lónið hefur hafið starfsemi að nýju að höfðu samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum.  Á starfssvæði Bláa Lónsins er nú þéttriðið net gasmæla.  Þá er veðurstöð staðsett á einni bygginu Bláa Lónsins.  Eftirlit og viðbagð við hugsanlegri gasmengun er nú með allt öðrum hætti en áður hefur verið á starfssvæði Bláa Lónsins.   Öryggisfulltrúi á vegum fyrirtækisins situr daglega morgunfundi aðgerðastjórnar og vettvangsstjórnar.   

Ekki er heimilt að ganga inn á gossvæðið frá bílastæðum Bláa Lónsins eða frá Grindavíkurvegi.  Svæði 3 á meðfylgjandi hættumatskorti.   Bannið tekur ekki til viðbragðsaðila, hóps vísindamanna og einstaklinga á vegum Blaðamannafélags Íslands með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum .  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.

Þeir sem eiga erindi inn á hættusvæði er bent á að athuga reglulega með loftgæði á svæðinu inn á vefsíðu Umhverfisstofnunar, á slóðinni:  https://loftgaedi.is/   Þar eru jafnframt góðar leiðbeiningar. Bent er á upplýsingar á vefsíðu Landlæknisembættisins, á slóðinni:  https://island.is/eldgos-heilsa  og vefsíðu Vinnueftirlitsins, á slóðinni:  https://vinnueftirlitid.is/

Frekari upplýsingar:

  • Íbúar, starfsmenn og gestir dvelja inn á hættusvæði á eigin ábyrgð.   Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. 
  • Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik.   Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í ólestri.  Lögreglustjóri mælir alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirvara.   Hætta er talin mjög mikil á jarðfalli ofan í sprungur, sprunguhreyfingum, hraunflæði og gasmengun. 
  • Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.  Þá hafa sprungur verið girtar af.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega.  Fólk haldi sig við götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en viðbragðsaðilum, íbúum bæjarins, starfsmönnum Grindavíkurbæjar, fyrirtækja, verktökum og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.  Fjölmiðlafólk hefur heimild til að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.   
  • Ekki þykir tímabært af öryggisástæðum að hleypa ferðamönnum að gosstöðvunum.  Hættur í og við gíginn eru:  Jarðfall ofan í sprungu, sprunguhreyfingar, gosopnum án fyrirvara, hraunflæði, gjóska og gasmengun. 

Enn eru hættur á svæðinu og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara.  Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. 

Lokunarpóstar eru við  Bláalónsveg, Grindavíkurveg, Nesveg og Suðurstrandarveg.   Flóttaleiðir frá Grindavík eru um Nesveg, Suðurstrandarveg og Grindavíkurveg. 

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settar upp þrjár viðvörunarflautur í Grindavík.  Þá er ein slík við Bláa lónið og önnur við HS orku í Svartsengi.  Þær hafa verið notaðar með góðum árangri.

Fáir Grindvíkingar kjósa að dvelja í bænum næturlangtLögreglustjóri mælir alls ekki með því og getur ekki ábyrgst öryggi þeirra við núverandi aðstæður.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.    

Framangreint fyrirkomulag gildir til  14. maí 2024, að öllu óbreyttu.