Á heimasíðu Samgöngustofu kemur fram: Vegna jarðhræringa í nálægð Grindavíkur hefur áður útgefið flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember Fjölmiðlum verða veittar undanþágur með skilyrðum.
![Drónabann við Grindavík](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/7rRVqkYhgO0ehGg7QVe9oD/78ef03c505e264d8e3888c7d8f4ec404/Dr_nabann_12._n_v_2023.png?w=774&fm=webp&q=80)
Að beiðni samhæfingarstöðvar Almannavarna, fyrir hönd Lögreglustjórans á Suðurnesjum, hefur áður auglýst flug- og drónabann verið framlengt til 15. desember nk. Lokunin nær til sama svæðis og verið hefur, sem markast af eftirfarandi hnitum:
635621N0222218W
635440N0221323W
634641N0222232W
634902N0223533W
Gegn skráningu og tilkynningaskyldu fá fjölmiðlar undanþágu til drónaflugs undir 60 m yfir sjávarmáli. Þó verður ekki heimilt að fljúga drónum á svæðinu milli kl. 18:00 og 07:00. Sótt er um undanþágu á netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644 á dagvinnutíma.