Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi og Suðurlandi aflýsir óvissu- og hættustigum almannavarna vegna veðurs sem fór yfir umdæmin 9-10. október. Engar veðurviðvaranir eru í gildi.