Ákvörðun lögreglustjóra dags. 19. febrúar 2024:
Ríkislögreglustjóri hefur fallið frá fyrirmælum um brottflutning úr Grindavík frá og með 19. febrúar 2024. Ákvörðun ríkislögreglustjóra um brottvísun með heimild í 24. gr. laga um almannavarnir nr. 82/2008 tók gildi 15. janúar sl. og var síðan framlengd einu sinni eða þann 4. febrúar sl.
Með hliðsjón af framansögðu hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekið þá ákvörðun að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn með vitneskju um neðangreint:
- Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í lamasessi. Stofnlögn heitavatns til bæjarins lekur, að því er talið er undir hrauni, en leitað er bilunar. Það eru tilmæli til fólks að ekki sé hróflað við stillingum heitavatns í húsum. Kalt vatn er ekki komið á og því ekkert neysluvatn. Aðstæður eru því aðrar en þær sem telja má boðlegar fyrir búsetu í húsum.
- Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.
- Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við gangstéttir og götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
- Grindavík er lokuð öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.
Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svartsengi.
Gefnir verða út QR kóðar fyrir Grindvíkinga og þá sem starfa í bænum. Gert er ráð fyrir því að þeir gildi til lengri tíma en verið hefur.
Lyklar að íbúum/húsum eru í vörslu viðbragðsaðila en talið er hentugt að halda óbreyttu fyrirkomulagi vegna eftirlits með lagnarkerfum í húsum eitthvað áfram.
Lokunarpóstar verða áfram á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.
Fjölmiðlafólki verður gert kleift að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja. Sækja þarf um QR kóða.
Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrír almannavarnalúðrar eða sírenur í Grindavík. Þá er einn slíkur við Bláa lónið og annar við orkuverið í Svartsengi.
Lögreglustjóri á ekki von á því að margir Grindvíkingar kjósi að dvelja í bænum næturlangt. Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því.
Dregið verður úr viðveru viðbragðsaðila í Grindavík en lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.
Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/ þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni www.almannavarnir.is
Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir. Nýtt fyrirkomulag tekur gildi kl. 7 í fyrramálið, þriðjudaginn 20. febrúar 2024 en verður endurskoðað 29. febrúar 2024 að öllu óbreyttu.
Tilkynnist hér með,
Úlfar Lúðvíksson
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum