Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna aftakaveðurs, sem lýst var yfir þann 9. desember. Ákvörðunin er tekin í samráði við lögreglustjóra landsins.
Hættustigi almannavarna fyrir Norðurland vestra, Norðurland eystra og Strandir er ekki aflýst að svo stöddu þar sem enn er verið að glíma við afleiðingar veðursins. Aðgerðastjórnir á Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra eru enn að störfum og samhæfa aðgerðir og sinna aðstoðarbeiðnum.
Allt kapp er lagt á að tryggja öryggi og heilsu íbúa og unnið er hörðum höndum við að koma fjarskiptum, samgöngum og rafmagni í samt lag. Rafmagni hefur verið komið á með bráðabrigðaviðgerðum og víða er keyrt á varaafli. Viðgerðir geta staðið í nokkra daga. Afhendingaröryggi er víða ótryggt. Vetrarfærð er á vegum. Ljóst er að mikið eignatjón hefur fylgt veðrinu, sem enn á eftir að meta.