Veðurstofa Íslands hefur metið áframhaldandi rýmingarþörf á Seyðisfirði, í Neskaupstað og á Eskifirði.
Ákveðið hefur verið að aflétta á rýmingu á eftirtöldum svæðum:
Veðurstofan hefur ákveðið afléttingu á rýmingu á reit 13 og 15 á Seyðisfirði.
Veðurstofan hefur ákveðið afléttingu á rýmingu á reitum 6, 18 og 20 í Neskaupstað.
Veðurstofan hefur ákveðið afléttingu á rýmingu á reit 4 á Eskifirði.