Af óvissustigi Almannavarna vegna veðurs á Ströndum og Norðurlandi

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórana á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra, aflýsir óvissustigi Almannavarna vegna veðurs þar sem spáð var norðanátt með slyddu og snjókomu.

Áfram eru í gildi gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi, Suðausturlandi og Miðhálendinu og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspá á http://www.vedur.is og færð á vegum á http://www.umferdin.is.