Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum aflýsir óvissustigi vegna eldgoss við Litla Hrút. Eldgosið hófst 10. júlí síðastliðinn og var þá lýst yfir hættustigi, en áður hafði verið í gildi óvissustig vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.
Reykjanesskaginn er virkur með tilliti til jarðskjálfa- og eldvirkni og verður áfram fylgst vel með þróun atburða og almannavarnastig reglulega endurmetin.
Vakin er athygli á því að varhugavert getur verið að fara inn á hraunbreiðuna við Litla Hrút og að gígum. Töluverðan tíma getur tekið fyrir hraun að kólna og ennþá er yfirborð og gígar óstöðugir, hrun getur orðið eða sprungur geta myndast.