Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgoss á Reykjanesi.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins sem hófst í gærkvöldi á Reykjanesi.  Eldgosið sem hófst á tíunda tímanum í gærkvöldi óx jafnt og þétt fyrstu klukkutímana og var heildarlengd gossprungunnar um sjö kílómetrar, þegar hún var sem lengst.  Gossprungan var þó ekki á neinum tímapunkti öll virk í einu.  Í samanburði við síðustu eldgos á svæðinu þá er virknin mun norðar en áður.

Þessi ákvörðun dregur ekki úr viðbúnaði viðbragðsaðila og Almannavarna í tengslum við aðgerðir vegna eldgossins.