Af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi.

Nú þegar eldgosinu við Sýlingarfell er lokið og ástandið er stöðugra er almannavarnastig fært niður á óvissustig. Fyrr í dag sást á drónamyndum að virkni í gígnum er engin. Áfram er þó rennsli í þeim hrauntungum sem fóru yfir varnargarð norðan Sýlingarfells en búast má við að rennslið stöðvist á næstunni. Mest virkni er í hrauntungunni lengst til vesturs sem hefur færst áfram um nokkra metra og þykknað á síðustu klukkustundum. Gosórói hefur einnig farið minnkandi á síðustu sólarhringum.

Vinna við að hemja hraunrennslið hefur nú staðið yfir í nokkra daga, bæði með vinnuvélum og hraunkælinu. Þar sem aðstæður hafa breyst þá hefur hraunkælingunni verið hætt og fara næstu dagar og vikur í að meta hvort og þá mögulega hvernig hún virkaði. Óhætt er að segja að vinnan við hraunkælinguna hefur skilað mikilli reynslu sem nýtist ef til hennar kemur aftur í framtíðinni.  

Þau sem hafa starfað á svæðinu fá kærkomna hvíld á morgun, sunnudag en strax á mánudagsmorgun hefst vinnan á ný að klára það verk sem hafið var, að verja Svartsengi enn frekar með varnargarðavinnu. Það er fyrst og fremst tilgangurinn með vinnunni sem er fram undan á næstu dögum og vikum. Búið er að gera minni varnargarð fyrir innan þann sem fyrir var og er hraunið komið að honum en þó ekki honum öllum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra langar að koma á framfæri þakklæti til allra sem komu að þessari vinnu síðustu daga og nætur. Áfram verður svæðið vaktað af Veðurstofunni og mun Lögreglan á Suðurnesjum sinna vaktinni á staðnum.