Af hættustigi á óvissustig – eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell lokið

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig þar sem eldgosinu norðan Stóra-Skógfell er lokið.

Eldgosið sem stóð yfir í 14 daga er þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember 2023. Gosið sem hófst um miðjan mars stóð í um 54 daga og eldgosið sem hófst í lok maí stóð yfir í um 24 daga.  Síðustu merki um gosóróa sáust síðdegis í gær og engin sjáanleg virkni hafa sést í gígum í um hálfan sólarhring. Samkvæmt Veðurstofunni þá er landris hafið að nýju í Svartsengi og verður hættumat þeirra uppfært síðar í dag.

Mynd tekin 5.september 2024: Almannavarnarsvið ríkislögreglustjóra