Viðbragðsaðilar hafa komið sér saman um 3 háskastig almannavarna sem taka til allra neyðaraðgerða. Almannavarnastig eru flokkuð eftir alvarleika, umfangi viðbúnaðar og þörf á forgangshraða viðbragðsaðila.
Ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun um almannavarnastig hverju sinni í samráði við viðkomandi lögreglustjóra ef unnt er og tilkynnir það dómsmálaráðherra. Heimilt er að lýsa yfir almannavarnaástandi þegar neyðarástand er líklegt, er yfirvofandi eða ríkir eða sambærilegar aðstæður eru fyrir hendi.
Reglugerð um flokkun almannavarnastiga 650/2009
Stig alvarleika eru:
- Óvissustig
- Hættustig
- Neyðarstig
Skýringarmynd um stigakerfi almannavarna
Aðgerðir geta hafist á óvissustigi (t.d. eldgos), hættustigi eða neyðarstigi (t.d. slys og bráðamengun).
Skýringarmyndin hér að ofan sýnir á heildstæðan hátt samsetningu stigakerfis almannavarna þar sem alvarleiki atburðar er flokkaður í óvissu, hættu, neyð. Umfang í ljósi alvarleika er flokkað í grænt, gult, rautt, svart og þörf á forgangi við boðun flokkuð eftir alvarleika útkalls.