Þjónustumiðstöðin í Heimalandi er opin alla daga kl.11:00-15:00. Þar hafa sérfræðingar komið og miðlað upplýsingum til heimamanna. Alla þessa viku eru hádegisfundir í Heimalandi frá 12:00 - 13:30.
Í hádeginu í gær svaraði Jónatan Hermannsson, jarðræktarfræðingur fyrirspurnum og í dag verður Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir með fræðslu og svarar fyrirspurnum. Á miðvikudaginn 5. maí verður Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri til viðtals, fimmtudaginn 6. maí Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri í landbúnaðarráðuneytinu og 7. maí verður formaður Bændasamtaka Íslands Haraldur Benediktsson í hádeginu í Heimalandi.
Íbúar eru hvattir til að koma í Heimaland og afla sér upplýsinga um mál, sem tengjast eldgosinu og ýmissa afleiðinga þess.
Fulltrúi sveitarfélags verður í Þjónustumiðstöðinni Heimalandi alla daga milli kl.12:00-13:30 Verkefnastjóri almannavarna er Vagn Kristjánsson og er hægt að hafa samband við hann í síma 8474230. Netfangið er heimaland@visir.is . |