Á upplýsingafundi Samhæfingarstöðvarinnar í Skógarhlíð í dag kl. 8.00 munu Matthew James Roberts, jöklafræðingur frá Veðurstofu Íslands, og Jón Gunnar Borgþórsson, forstöðumaður markaðssviðs Ferðamálastofu, svara spurningum fjölmiðla.
Fulltrúar Bjargráðasjóðs verða í upplýsingamiðstöðinni að Heimalandi í dag kl. 12.00 – 14.00 og munu veita íbúum upplýsingar og ráðgjöf.
Þjónustumiðstöð að Heimalandi er ætlað að veita íbúum í grennd við gosstöðvarnar á Eyjafjallajökli þjónustu og aðstoð við uppbyggingu á svæðinu. Felst það meðal annars í hreinsunarstarfi og áframhaldandi skipulagi þess auk þess sem sett hefur verið upp miðstöð upplýsingagjafar að Heimalandi fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum vegna eldgossins. Upplýsingamiðstöðin er opin daglega í kringum hádegi en þar er einnig boðið upp á hádegismat fyrir íbúa og aðra sem vinna að uppbyggingarstarfinu. Netfang miðstöðvarinnar að Heimalandi er heimaland@visir.is .
Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, 8-13 m/s, en hvassara síðdegis. Gert er ráð fyrir lítilli úrkomu, en rigningu með köflum eftir hádegi. Búast má við lítilsháttar öskufalli norðvestur og síðar vestur af eldstöðinni.
Flugfarþegum er bent á að fylgjast með fréttum og afla sér upplýsinga um flug hjá flugrekendum og á textavarpinu.
Fjölmiðlateymi Samhæfingarstöðvar Almannavarna |