Varnir fyrir jarðskjálfta Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan brotnar eða hrekkur til á gömlum brotaflötum. Þeir gera sjaldnast boð á undan sér. Því er nauðsynlegt að gera öryggisráðstafanir fyrirfram og læra rétt viðbrögð. Hvar á heimilinu eða vinnustað geta leynst hættur ef jarðskjálfti verður fyrirvaralaust? Hægt er að draga verulega úr hættu ef hugað er að eftirtöldum atriðum:
Húsgögn Festið skápa, hillur og þunga muni í gólf eða vegg. Hafið hjól sem eru á húsgögnum alltaf í læstri stöðu. Ef engin læsing er á hjólunum, setjið þá ramma utan um hjólin til að koma í veg fyrir að húsgögnin fari af stað í jarðskjálfta. Munið hins vegar að rammi eða læsing á hjólum kemur ekki í veg fyrir að húsgögn velti. Lausir munir og skrautmunir Stillið þungum munum ekki ofarlega í hillur eða á veggi án þess að festa þá tryggilega. Hægt er að nota kennarartyggjó til að tryggja að léttari munir færist ekki úr stað við jarðskjálfta. Kynditæki og ofnar Festið kynditæki og ofna. Kynnið ykkur staðsetningu og lokun á vatnsinntaki og rafmagnstöflu. Festið hitaveituofna tryggilega. Leki getur valdið miklu tjóni ef ekki er lokað strax fyrir vatnið. Sama gildir um frágang á þvottavélum og uppþvottavélum Myndir, ljósakrónur Festið myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur.  Skápahurðir Geymið þungan borðbúnað í neðri skápum / skúffum og setjið öryggislæsingar / barnalæsingar á skápahurðir til varnar að innihald þeirra falli út úr þeim. Svefnstaðir Fyrirbyggið að skápar, málverk, brothættir og þungir munir geti fallið á svefnstaði. Varist að hafa rúm við stóra glugga og hlaðna milliveggi. Loft og gólf Gangið vel frá niðurhengdum loftum og upphækkuðum gólfum. Rúður Byrgið fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Látið rúm ekki standa undir gluggum ef hætta er á jarðskjálftum.
Tryggingar Bætur Viðlagatryggingar Íslands á fasteignum eru miðaðar við brunatryggingar, sem eru skyldutryggingar. Mikilvægt er að innbústryggingar sem eru frjálsar tryggingar, séu sem næst raunverulegu verðmæti innbús svo tjón fáist að fullu bætt. Útvarp og tilkynningar Hlustið á tilkynningar og fyrirmæli sem gefin eru í útvarpi. Gott er að hafa útvarp með langbylgju ef FM sendar detta út. Símar Þráðlausir símar duga skammt ef rafmagn dettur út, hafið því snúrusíma til vara ef hringja þarf eftir hjálp í neyð. Þá getur verið gott að eiga hleðslutæki til að hafa í bifreið. Sendu SMS í stað þess að hringja til að minnka álag í hamförum.
Hvernig getum við undirbúið okkur fyrir jarðskjálfta KRJÚPA – SKÝLA – HALDA -er orðaröð sem rétt er að leggja á minnið. Munið að handhægt er að safna neyðarútbúnaði saman í "viðlagakassa" sem allir á heimilinu vita um. Þar má geyma sjúkrakassa, vasaljós, útvarp, rafhlöður og ýmsar sérþarfir heimilismanna sem erfitt er að vera án.
Viðbrögð við jarðskjálfta Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur útbúið myndband um viðbrögð við jarðskjálfta sem er á You tube Ýmislegt gagnlegt er varðar jarðskjálfta
Myndir (ppt 524 kb) Hljóðupptaka af snörpum jarðskjálfta. Af tilviljun var segulbandstæki stillt á upptöku þegar skjálftinn varð og móðir heyrist hrópa á börn sín í örvæntingu. Algengar spurningar og svör um einkunarorðin krjúpa - skýla - halda
|